Leita

Tímabil:
 
 
Stærð:
Vinsælar eignir Fleiri eignir >>
  • Bjarkarsel, Flúðum

  • EINGÖNGU SUMARLEIGA Orlofshúsið er staðsett í Ásabyggð á Flúðum, ca 100 km frá Reykjavík. Húsið sem er 52 fm skiptist í forstofu, 2 svefnherbergi með sængum og koddum og baðherbergi með sturtu. Svefnpláss fyrir fjóra í tveimur tvíbreiðum rúmum.  Stofan er með sjónvarpi, dvd og útvarpi og fullbúið eldhús. Stór sólpallur er við húsið og þar er heitur pottur í góðu skjóli með gasgrilli. Mikill trjágróður er umhverfis með útiverusvæði fyrir börnin. Mikið er af merktum gönguleiðum í nágrenningu. Stutt er í hraðbanka, verslun, golfvelli, sundlaug, veitingastaði og fleira. Skammt frá Flúðum er Gullfoss, Geysir, Háifoss, Gjáin og Þjórsárdalur svo eitthvað sé nefnt.

  • Nánar >>
  • Svignaskarð 5

  • AÐEINS SUMARLEIGA.   Húsið er með þremur svefnherbergjum, stofu, eldhúsi, baðherbergi og geymslu. Svefnpláss er fyrir 6 – 8 manns í rúmum, leirtau og búnaður fyrir að minnsta kosti tíu manns. Heitur pottur er við húsið og gasgrill fylgir. Gestum er heimilt að koma í húsið frá kl. 16:00 á komudegi og skila þeim hreingerðum fyrir kl. 12:00 á brottfarardegi. Föstudagar eru skiptidagar.

  • Nánar >>
  • Ássel 3, Kjarnaskógi

  • AÐEINS SUMARLEIGA EN HÆGT AÐ HAFA SAMBAND VIÐ VERKALÝÐSFÉLAGIÐ Á ÞÓRSHÖFN MEÐ VETRARLEIGU.   Í Kjarnaskógi við Akureyri er boðið upp á vel búið 53 m2 orlofshús. Í húsinu er þrjú svefnherbergi, eitt með hjónarúmi og tveim aukadýnum og hin tvö með koju. Við húsið er góð verönd og heitur pottur.

  • Nánar >>
  • Dranghólaskógur, Öxarfirði

  • Í Dranghólaskógi við Lund bjóða félögin upp á orlofshús allan ársins hring. Húsið er vel búið með þrem svefnherberjum, einu með hjónarúmi og hinum með kojum. Í húsinu eru tvær aukadýnur. Í ár verður húsið í leiguskiptum frá 2. júní til 1. september en hægt er að fá húsið leigt utan þess tíma.

  • Nánar >>
  • Þorrasalir íbúð 102

  • Íbúðin er í fjölbýlishúsi staðsett í útjaðri Kópavogs skammt frá Smáralind verslunarmiðstöðinni. Fallegar gönguleiðir eru í næsta nágrenni og stutt í þjónustu. Félagið leggur mikla áherslu á góða umgengni og tilitssemi við aðra íbúa hússins. Gerist menn bortlegir við húsreglur fyrirgera þeir sér frekari rétt til að fá leigðar íbúðir eða hús af félaginu. Húsreglurnar má finna í möppu í skáp í íbúðinni. Íbúðin er vel útbúin með tveimur svefnherbergjum og gistiaðstöu fyrir 6 manns. Góð bílastæði eru við húsið og bílastæði í bílakjallara fylgir íbúðinni. Komu og brottfarartími: Leigutaka er heimilt að fara inn í íbúðina kl. 16:00 á komudegi. Brottfarartími er kl. 14:00. Lyklar:  Lyklabox eru staðsett við hverja íbúð nema að 302, þar er lyklaboxið við hlið íbúðar 204. Eins er hægt að sækja lykla af íbúðinni á Skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík og skal skila strax að lokinni dvöl aftur á skrifstofuna.

  • Nánar >>