Upplýsingar eignar  -  Asparfell 8, 1 hæð - Reykjavík
Almennar upplýsingar
Nafn Asparfell 8, 1 hæð - Reykjavík Tegund Íbúð
Svæði Höfuðborgarsvæðið Öryggis kóði
Heimilisfang Asparfelli 8, 111 Reykjavík
Lýsing

Í Breiðholtinu er boðið upp á íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi þar sem stutt er í ýmiskonar þjónustu.

Félagið leggur mikla áherslu á góða umgengni og tilitssemi við aðra íbúa hússins. Gerist menn bortlegir við húsreglur fyrirgera þeir sér frekari rétt til að fá leigðar íbúðir eða hús af félaginu. Húsreglurnar má finna í möppu í skáp í íbúðinni.

Íbúðin er vel útbúin með einu svefnherbergi og gistiaðstöu fyrir þrjá. Góð bílastæði eru við húsið.

Komu og brottfarartími: Leigutaka er heimilt að fara inn í íbúðina kl. 16:00 á komudegi. Brottfarartími er kl. 14:00.

Lyklar:  Sækja skal lykla af íbúðinni á Skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík og skal skila strax að lokinni dvöl aftur á skrifsofuna.