Byrjar á að skrá þig inn á orlofsvefinn.
Valið er "UMSÓKN UM ÚTHLUTUN"
Farðu vel yfir skráðar upplýsingar um þig. Athugið að tölvupóstfang þarf að vera rétt skráð þar sem niðurstöður úthlutunar verða sendar á það.
Veljið eign og síðan tímabil í fellilista. Mismunandi er eftir tímabilum hversu marga valmöguleika er hægt að velja. Því fleiri kostir sem valdir eru því meiri möguleikar á að fá úthlutun.
Þegar búið er að velja er smellt á SENDA.
Staðfestingar póstur er sendur sjálfvirkt á uppgefið netfang en einnig er hægt að prenta út valkostina.
Hægt er að skoða umsóknina hvenær sem er undir "Síðan mín" þegar félagsmaður er innskráður í orlofskerfi.
Við úthlutun fá allir sem sóttu um tölvupóst sem tilgreinir hvort að þeir hafi fengið úthlutað eða ekki. |