Eitt hús með tveimur herbergjum, í öðru er hjónarúm 140 sm breitt og í hinu er koja fyrir tvo til þrjá, 120 sm neðri og 90 sm efri. Þrjár aukadýnur og barnaferðarúm er til staðar. Húsið er kynnt með hitaveitu. Heitur pottur á staðnum og útisturta. Áfast við austurpall er 10,5 fermetra upphitaður geymsluskúr. Víðigrund er í jaðri Þórðarstaðaskógar í Fnjóskadal, sem er rétt sunnan við Vaglaskóg og í um 32 km fjarlægð frá Akureyri ef ekið er eftir Vaðlaheiðagöngum en annars 50 km eftir Víkurskarði. Mikil veðursæld er á þessum stað. Úti er leikaðstaða fyrir börn, þ.e. rólur, sandkassi, körfuboltaspjald og fótboltamark. 16A hleðslutengi er fyrir rafmagnsbíla.
Skammt er til Illugastaða, 1,7 km en þar er verslun sem selur helstu nauðsynjavörur og hafa gestir í Víðigrund aðgang gegn gjaldi, að mini-golfi, sundlaug með heitum potti og gufubaði. Þar er einnig hægt að fá þvott þveginn gegn gjaldi. Níu holu golfvöllur er í landi Lunds sem er um 10 km norðan við Víðigrund. Þar er einnig kaffi- og veitingasala. Góðar gönguleiðir eru um nágrennið og margt að skoða. Gæludýr eru leyfð en þess krafist að hreinsað sé upp eftir þau.
Net fylgir með í leiguverði
Öryggisnúmer fyrir 112 er 216 1758
Umsjónarmenn:
Guðrún Emilía Höskuldsdóttir sími 522-1821 eða 867-6004
Skúli Már Þórmundsson sími 623-8070
Magnús Björnsson sími 522-1838 eða 862-6656
|