Leiðbeiningar fyrir orlofshúsavef
1. Að skrá sig inn
Þú skráir þig inn með því að smella á innskráningu, efst í hægra horninu.

Settu inn kennitölu og veflykill (aðalveflykill ríkisskattstjóra)Smelltu á staðfesta.

2. Að finna laust tímabil
Til þess að sjá laus tímabil smellir þú á laus tímabil á láréttu valstikunni (menu).

3. Að bóka sér hús
Smelltu á dagatalið þar sem eru lausir dagar (hvítir ferningar). Til þess að fara í næsta mánuð er smellt á viðeigandi mánuð fyrir ofan dagatalið.Þegar þú hefur valið dag kemur upp sprettigluggi (pop up) þar sem þú ert beðinn um að velja lokadagsetningu.

Eftir að tímabil er valið er smellt á senda og þá þarf að ganga frá greiðslu. |