Íbúðin er að Seljahlíð 3c á Akureyri. Um er að ræða lítið raðhús sem er stofa og tvö svefnherbergi. Í hjónaherberginu er tvíbreitt stórt rúm, auk smábarnarúms og í hinu herberginu er koja með tvíbreiðu rúmi niðri, þar sem þrír geta sofið. Raðhúsið er búið öllum helstu nútímaþægindum, þvottavél, sjónvarpi, nettengingu og síma og þar er sérverönd með gasgrilli og útihúsgögnum.
Í Brekkuskógi á Blaðamannafélagið 2 orlofshús. Í húsunum eru tvö svefnherbergi, stór stofa með eldhúskrók og baðherbergi með sturtu. Svefnpláss er fyrir 5 auk smábarnarúms. Öll venjuleg heimilstæki, sjónvarp, myndbandstæki og DVD spilari og gasgrill fylgja bústöðunum. Í báðum bústöðunum eru heitir pottar
Í Brekkuskógi á Blaðamannafélagið 2 orlofshús. Í húsinu eru tvö svefnherbergi auk gestahúss, stór stofa með eldhúskrók og baðherbergi með sturtu. Svefnpláss er fyrir 9 auk smábarnarúms. Öll venjuleg heimilstæki, sjónvarp, myndbandstæki og DVD spilari og gasgrill fylgja bústöðunum. Í báðum bústöðunum eru heitir pottar.
Blaðamannafélagið býður upp á orlofshús í útjaðri Stykkishólms. Um er að ræða glæsilegt hús sem byggt var árið 2006. Húsið er 105 fermetrar að stærð með þremur svefnherberjum og svefnlofti. Samanlagt er svefnpláss í húsinu fyrir 12-14 manns. Húsinu fylgir verönd og tölvustýrður pottur, auk alls sem tilheyrir nútíma heimilishaldi.