Opnanir orlofstímabila

Sumar

Opið er fyrir umsóknir um sumarúthlutun í orlofshús VM frá 22. febrúar til og með 6. mars. Sumartímabilið árið 2024 er frá 14. júní til 23. ágúst en helgarleiga er leyfð eftir það

Úthlutað verður þann 7. mars en síðasti greiðsludagur er 13. mars. Daginn eftir, þann 14. mars klukkan 12:00, verður opnað á bókanir fyrir þá sem fengu synjun.

Vefurinn opnar aftur fyrir almennar bókanir 20. mars kl. 12:00.

Athugið að eingöngu er hægt að sækja um orlofshús/-íbúðir í gegnum orlofsvefinn. Til að skrá sig inn á félagavef þarf að nota rafræn skilríki eða íslykil. Inneign orlofspunkta ræður því hver fær bústað en öllum umsóknum verður svarað.

Við minnum á að ferðastyrkir standa ekki lengur til boða en þess í stað er hægt að kaupa ferðaávísun. Hún veitir aðgang að tugum hótela og gistiheimila á sérkjörum um allt land en einnig að gönguferðum og annarri útivist. Ferðaávísun fæst aðeins keypt á orlofsvef.

Páskar

Opið er fyrir umsóknir um páska í orlofshús VM frá 1. febrúar til og með 13. febrúar.

Úthlutað verður þann 14. febrúar en síðasti greiðsludagur er 25. febrúar. Daginn eftir, þann 26. febrúar klukkan 12:00, verður opnað fyrir almennar bókanir.

Bókunartímabil fyrir vor og haust

Vor: Tímabil 6. janúar 2024 til 3.júní 2024, að undanskildum páskum.

Opnað fyrir bókanir 1. nóvember 2023 kl 11:00

Í gildi reglan "fyrstur bókar fyrstur fær".

Haust: Tímabil 23. ágúst 2024 til 3. janúar 2025.

Opnað fyrir bókanir 3. júní 2024 kl 11:00.

Í gildi reglan "fyrstur bókar fyrstur fær"


Bókunartímabil fyrir Mánatún í Reykjavík 

VorTímabil 5. janúar 2024 til 3.júní 2024

Opnað fyrir bókanir 1. nóvember 2023 kl 11:00

Í gildi reglan "fyrstur bókar fyrstur fær"

HaustTímabil 26. ágúst 2023 til 6. janúar 2024

Opnað fyrir bókanir 1. júní 2023 kl 11:00

Í gildi reglan "fyrstur bókar fyrstur fær"