Íbúðirnar eru 50 fm með svefnplássi fyrir fimm. Í íbúðunum eru tvö svefnherbergi. Eitt hjónaherbergi með tvíbreiðu rúmi og hitt herbergið er með tvíbreiðri neðri koju og einbreiðri efri koju. Í hverri íbúð eru fimm sængur og fimm koddar. Barnarúm og barnastóll eru í hverri íbúð.

Lyklar: Snerta takkaborð á hurðalæsingu til þess að virkja skjáinn. Slá inn 4 stafa pin kóða og ýta á #

Annað:

Vinsamlega skoðið vel leigusamning fyrir eignina.

Sængurföt, borðtuskur o.þ.h. er í íbúðum félagsins á Akureyri.

Vaktþjónusta lækna allan sólarhr. 112 .

Innifalið í verði er þrifagjald fyrir brottfaraþrif er 5000 kr fyrir fyrstu nótt og 500 kr fyrir hverja nótt eftir það..
Frágangur félagsmanna verður þá eftirfarandi
Leigjandi á að ganga snyrtilega um íbúðina og við brottför á að, þurrka af borðum, taka úr uppþvottavél, Þrífa bakaraofn, þrífa ísskáp, þrífa og ganga frá grilli, henda öllu rusli og ganga frá líni í þvottakörfu og skilja eftir í geymslu.

Komutími í hús er kl. 17:00.
Skil á húsi er kl. 12:00 á brottfarardegi.

Munið eftir að taka með ykkur WC-pappír!

ATH: Gæludýr eru ekki leyfð í húsinu.