Húsin eru 35 fm. Í svefnherbergi er tvíbreitt rúm (160 cm) og efri koja. Í hverju húsi eru fjórar sængur og fjórir koddar. Barnarúm og barnastóll eru í húsunum. Við hvert hús er verönd með heitum potti.

Lyklar: Snerta takkaborð á hurðalæsingu til þess að virkja skjáinn. Slá inn 4 stafa pin kóða og ýta á #.

Annað:

Góð verönd og heitur pottur. Hverju húsi fylgir kort að sundlaugarsvæðinu á orlofssvæði VM. Kortið eru á lyklakippu sem fylgir hverju húsi.

Innifalið er: aðgangur og afnot af sundlaug, pottum, gufubaði og sturtum í ofangreint tímabil.  Þú og þeir sem fara inn á sundlaugarsvæðið á þínum korti eru alfarið á þinni ábyrgð.
BANNAÐ er að hleypa inn öðrum en þeim sem dvelja í húsinu sem þú hefur á leigu og STRANGLEGA BANNAÐ að leyfa börnum undir 12 ára aldri að fara inn á sundlaugarsvæðið án eftirlits fullorðinna. Sundlaugin er ekki vöktuð. Gestir eru þar á eigin ábyrgð og ber að ganga vel um svæðið. Ekki er leyfilegt að neyta áfengis á sundlaugar svæðinu. Sundlaugin er opin frá júní til sept.

Munið að taka með ykkur salernispappír og sængurfatnað.

Komutími í hús er kl. 16:00.
Skil á húsi er kl. 12:00 á brottfarardegi.