Húsið er 70 fm ásamt 40 fm svefnlofti, svefnpláss er fyrir sjö manns. Í húsinu eru þrjú svefnherbergi með rúmum fyrir 7, eitt herbergið er með tvíbreiðu rúmi, annað með tveimur einbreiðum rúmum og þriðja herbergið með fjölskyldu koju fyrir 3. Barnarúm og barnastóll eru í húsinu. Stór verönd með heitum potti er við húsið.

Lyklar: Snerta takkaborð á hurðalæsingu til þess að virkja skjáinn. Slá inn 4 stafa pin kóða og ýta á #.

Annað:

Á milli húsanna eru leiktæki fyrir börnin. Húsin standa á bökkum Fullsæls og fylgir veiðileyfi fyrir eina stöng hvoru húsi í Fullsæl að Brúará. Í húsinu er kort sem gefur tveimur dvalargestum í hverju húsi rétt til að spila frítt á golfvellinum í Miðdal, sem er um 10 km vestur af Syðri Reykjum. 

Vaktþjónusta lækna allan sólarhr. 112 .

Komutími í hús er kl. 16:00.
Skil á húsi er kl. 12:00 á brottfarardegi.

Munið að taka með ykkur salernispappír og sængurfatnað.

Af gefnu tilefni:
Gæludýr eru bönnuð í öllum orlofshúsum VM nema á Syðri-Reykjum í húsum 1 og 2!
Lausaganga hunda á svæðum er stranglega bönnuð.