Almennt

Gistimiðar

Félagsmenn sjá sjálfir um að panta gistingu. Best er að gera það áður en gistimiði er keyptur. 

Prenta þarf út hvern gistimiða sem er síðan afhentur við innritun á viðkomandi hótel, miðinn er greiðsla fyrir gistingu

Ef herbergi er bókað á vefmiðlum, svo sem heimasíðu hótelsins, eða öðrum vefmiðlum, er ekki hægt að greiðafyrir gistinguna með greiðslumiða frá stéttarfélagi, þar sem gestur hefur þá skuldbundið sig til að greiða við komu á hótel þá upphæð sem hann samþykkir við bókun.

Við bókun skal handhafi hótelmiða hafa samband við hótel í síma eða með tölvupósti.
Fram skulu koma þessar upplýsingar:

  • Að greitt sé með gistimiða frá félaginu
  • Nafn þess sem gistir á hóteli
  • Kreditkortanúmer til staðfestingar á bókun.
  • Komu dagsetning með áætlaðan komu tíma á hótel (ef hægt er að verða við því) og brottfarardagsetning.
  • Fjöldi herbergja og tegund þeirra.
  • Óskir um aðra þjónustu t.d. morgunverð.

Sjá úrval gistimiða