Á vetrum (september til maí) er hlið að orlofshúsabyggð lokað. Lykla (fjarstýringu) þarf að sækja á skrifstofu VFÍ, Engjateigi 9, sem er opin virka daga 9-16. Lyklum þarf að skila á sama stað strax að dvöl lokinni.

Hliðið er opið á sumrin (júní til ágúst).

Á veturna er húsið leigt frá fimmtudegi sumrin, júní til ágúst. til fimmtudags, á sumrin frá föstudagi til föstudags. Komutími er kl. 17 brottfarartími kl. 12.

 

Bústaðurinn er um 80 fermetrar, rúmgóður, með stórri verönd og heitum potti.

Stutt er í einn besta golfvöll landsins, Kiðjabergsvöllinn.

Í bústaðnum eru þrjú svefnherbergi með rúmstæði fyrir að hámarki átta manns. (Hjónaherbergi með tvíbreiðu rúmi (160 x 200) barnaherbergi með tveimur kojum (4 rúmstæði, (70 x 200) og herbergi með rúmi, ein og hálf breidd (120 x 200).

Í eldhúsi er eldavél með innbyggðum bakaraofni, örbylgjuofn og uppþvottavél. Bústaðnum fylgir gasgrill, sjónvarp, útvarp, nettenging og þvottavél. Barnarúm er í bústaðnum og barnastóll.


Athugið að stranglega bannað er framleigja bústaðinn til ættingja eða vina. 

Vanræki leigutaki að þrífa eftir sig mun hann fá á sig merkingu í orlofskerfinu og getur því ekki bókað hús á vefnum.

Orlofshúsin eru sameign sjóðfélaga, göngum um þau af alúð og sóma. Ef einhverju er ábótavant varðandi umgengni eða viðskilnað fyrri gesta vinsamlegast látið skrifstofu VFÍ vita.