Bústaðurinn var tekinn í notkun sumarið 2025.

 

Bústaðurinn er sérlega glæsilegur og rúmgóður, með stórri verönd og heitum potti.

Í bústaðnum eru fjögur svefnherbergi, svefnpláss fyrir að hámarki 8 manns. Tvíbreið rúm (160 x200) eru í þremur herbergjum og tvö einbreið rúm (80 x 200) í einu. 

 

Í eldhúsi er eldavél (spanhellur) með innbyggðum bakstursofni, örbylgjuofn og uppþvottavél. Bústaðnum fylgir gasgrill, snjallsjónvarp, útvarp og þvottavél. Barnarúm er í bústaðnum og barnastóll.

 

Athugið að stranglega bannað er framleigja bústaðinn til ættingja eða vina. 

Vanræki leigutaki að þrífa vel eftir sig fær hann fá á sig merkingu í orlofskerfinu og getur því ekki bókað hús á vefnum.

Orlofshúsin eru sameign sjóðfélaga, göngum um þau af alúð og sóma. Ef einhverju er ábótavant varðandi umgengni eða viðskilnað fyrri gesta vinsamlegast látið skrifstofu VFÍ vita.