Orlofsíbúðin er á þriðju hæð í fjölbýlishúsi við Kjalarsíðu 1A á Akureyri, sem er í Síðuhverfi í næsta nágrenni við Glerárkirkju og Síðuskóla.

Íbúðin er þriggja herbergja um 74 fm, með tveimur svefnherbergjum, stofu, eldhúskrók og geymslu.

Allir algengustu húsmunir og eldhúsáhöld fylgja. Svefnstæði eru fyrir sex: Eitt tvíbreitt rúm, tvö einstaklingsrúm og tvíbreiður svefnsófi. Einnig eru tvær lausar dýnur í íbúðinni. Sængur og koddar eru fyrir sex. Sjónvarp og vekjaraútvarp er í íbúðinni. Sameiginlegt þvottahús er á hverri hæð.

Í íbúðinni er þráðlaust net frá Símanum. Upplýsingar eru á þráðlausa búnaðinum.

Hægt er að leigja sængurföt, aukadýnur og sængur. Barnarúm og barnastól má fá hjá umsjónarmanni. Hægt er að fá aðkeypta ræstingu við lok leigutímans. 

Gjald fyrir ræstingu er eftir samkomulagi við umsjónarmann. Ef ræstingu er áblótavant verður íbúðin þrifin á kostnað leigjanda.

Í Kjalarsíðu gilda allar almennar reglur um umgengni í fjölbýlishúsum. Reykingar og neysla áfengis er ekki leyfð í sameign. Reykingar eru einnig bannaðar í íbúðinni.