Bústaðurinn er í Klapparholti í Borgarfirði. Aðeins 9 km. norður af Borgarnesi.
Húsið er vel búið, í því eru þrjú svefnherbergi. Svefnpláss er fyrir átta manns. Á neðri hæð eru tvö svefnherbergi, annað með tvíbreiðu rúmi (160 x 200) auk barnaferðarúms og hitt með tveimur kojum (90 x 200). Á efri hæð er svefnherbergi með tveimur einbreiðum rúmum (90 x 200). Húsið er fullbúið með vönduðum tækjum og húsbúnaði. Á verönd er heitur pottur, útihúsgögn og gasgrill. Fallegt útsýni er úr húsinu og mikið af góðum gönguleiðum í kring. Stutt er í Borgarnes í sund, verslandir og alla þjónustu sem þar er.
Í húsinu eru hreinlætisvörur fyrir uppþvott og lokaþrif. Taka þarf með lök og sængurfatnað, handklæði og handsápu, viskustykki, borðtuskur, ruslapoka í ruslafötu og salernispappír.
Í húsinu er nettenging.
Það eru einungis 5 km. í glæsilegan golfvöll að Hamri.
Athugið að stranglega er bannað að framleigja bústaðinn til ættingja eða vina.
Vanræki leigutaki að þrífa vel eftir sig fær hann fá á sig merkingu í orlofskerfinu og getur því ekki bókað hús á vefnum.
Orlofshúsin eru sameign sjóðfélaga, göngum um þau af alúð og sóma. Ef einhverju er ábótavant varðandi umgengni eða viðskilnað fyrri gesta vinsamlegast látið skrifstofu VFÍ vita.