Sómatún 1 -202 Akureyri

Íbúðin er á efri hæð til vinstri í tveggja hæða fjölbýlishúsi sem byggt var árið 2012. Í íbúðinni er svefnaðstaða fyrir sjö manns. Tvíbreitt rúm er í svefnherbergi, tvíbreitt og einbreitt rúm í öðru herbergi og tvíbreitt rúm  í því þriðja. Að auki er dýna (140 cm).  Ungbarnarúm og barnastóll eru í íbúðinni, auk þess sem hún er búin öllum helstu tækjum, m.a. sjónvarpi, DVD spilara og útvarpi. Eldhúsið er vel tækjum búið; uppþvottavél, örbylgjuofn og stór ísskápur með frysti. Borðbúnaður er fyrir tólf. Í þvottahúsi sem er inn af forstofu er þvottavél. Gasgrill og útihúsgögn eru á svölum íbúðarinnar.

Ekki er leyfilegt að hafa gæludýr í orlofsíbúð OVFÍ í Sómatúni. 

VINSAMLEGA SÝNIÐ TILLITSEMI. ÍBÚÐIN ER Í FJÖLBÝLISHÚSI. HÁREYSTI ER BÖNNUÐ EFTIR KL. 22 VIRKA DAGA OG EFTIR MIÐNÆTTI UM HELGAR.

Athugið að stranglega bannað er framleigja íbúðina til ættingja eða vina. 

Vanræki leigutaki að þrífa vel eftir sig fær hann fá á sig merkingu í orlofskerfinu og getur því ekki bókað hús á vefnum.

Orlofshúsin eru sameign sjóðfélaga, göngum um þau af alúð og sóma. Ef einhverju er ábótavant varðandi umgengni eða viðskilnað fyrri gesta vinsamlegast látið skrifstofu VFÍ vita.