1.gr

Orlofshús og íbúðir í eigu orlofssjóðs Verk Vest eru eingöngu leigð út til félagsmanna Verk Vest og Félags Járniðnaðarmanna á Ísafirði. Heimilt er að veita undanþágu á leigu til annarra aðildarfélaga innan ASÍ sem bera þá ábyrgð á hinu leigða.

Rétt til úthlutunar orlofshúsa og orlofsíbúða eiga allir félagsmenn Verk Vest sem greitt er af til sjóðsins svo og þeir sem lokið hafa starfsævi hjá félaginu, eru orðnir 67 ára eða eldri og hafa verið félagsmenn eigi skemur en 5 ár.

Verk Vest er heimilt að semja við önnur félög um samstarf við útleigu orlofshúsa og íbúða. Félagsfólk þeirra félaga getur leigt orlofshús samkvæmt reglum sem stjórn orlofssjóðs setur. Umsóknir eru rafrænar á orlofsvefs félagsins á heimasíðu þess.


2.gr

Afgreiðsla

Almenn afgreiðsla og þjónusta vegna úthlutun íbúða og sumarhúsa eru hjá skrifstofum félagsins á Ísafirði og Patreksfirði. Eining er hægt að nálgast lykla hjá Sparisjóðnum á Hólmavik.

Allar bókanir fara í gegnum orlofsvef félagsins http://orlof.is/verkvest/ og miðast við staðgreiðslu. Bókunarvél er aðgengileg allan sólahringinn alla daga vikunnar.

Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu geta að sjálfsögðu bókað á opnunartíma skrifstofa félagsins og gengið frá greiðslu annað hvort á staðnum eða í gegnum síma.


 3.gr

Sumarúthlutun

Tilkynning um sumarúthlutun er send með tölvupósti til félagsmanna, Stuðst er við punktakerfi við úthlutun orlofseigna í sumarúthlutun Það skal tekið fram að punktar koma ekki í staðinn fyrir greiðslu,

heldur ganga þeir fyrir í úthlutun sem eiga flesta punkta.

Ávinnsla í punktakerfi hófst 1.1.2013 og ávinnast 2 punktar fyrir hvern mánuð, miðað við að greitt sé lágmarksfélagsgjald á ári. Félagsmenn sem greitt er af undir lágmarksgjaldi á ári, ávinna sér 1 punkt fyrir hvern mánuð.

Eftir að sumarúthlutun hefur farið fram og enn eru laus tímabil til umsóknar skal starfsfólk félagsins auglýsa eftir umsóknum á heimasíðu félagsins og gildir þá reglan fyrstur kemur fyrstur fær.

4.gr

Opnun tímabila orlofsíbúða.

 Tímabil opnunar: 2.janúar-15.maí og 15.maí til 2.Janúar.


5.gr

Greiðslufrestur

Leiga á orlofseignum utan sumarúthlutunar skal staðgreidd við pöntun. Ekki er hægt að panta orlofshús án greiðslu. Leiga er EKKI endurgreidd en félagsmenn sem afpanta fá inneign í orlofskerfi sem hægt er að nota sem innborgun upp í næstu leigu.

Inneign er því aðeins heimil að eitthvað neðan greindra atriða eigi við:

Vegna af bókana með viku fyrirvara er 1 sólahringur (kr. 5.500 ) dregin frá inneign. Ef af bókað er með 3ja sólahringa fyrirvara eða skemur þá verða einungis 25% af greiddri leigu að inneign í orlofshúsakerfi.

Sumarúthlutun verður að staðfesta með greiðslu eigi síðar en viku eftir að úthlutun lýkur, að öðrum kosti verður orlofshús auglýst laust til umsóknar.

5.gr

Þrif og skil

Orlofseign skal skilað í því ástandi sem kveðið er á um í umgengni reglum Orlofssjóðs eins og þær eru hverju sinni. Lyklum skal komið til umsjónarmanns eða á skrifstofur félagsins eftir því sem við á innan viku frá því leigu lýkur.

Þeir sem skila lyklum eftir þann tíma verða beittir sektarákvæði. Sektargjald vegna vanskilum á lyklum er kr. 5.000. Sektargjald vegna týndra lykla er kr. 15.000. Sektargjald v. týndra er ekki endurgreitt. Neyðarútkall umsjónarmanns vegna opnunar er kr. 8000.

 6.gr

Brot á leigusamningi og viðurlög

Verði leigutaki uppvís af alvarlegum brotum á leigu- og umgengni reglum áskilur félagið sér þann rétt að vísa leigutaka úr íbúð/sumarhúsi.

Leigutaka er óheimilt að framselja leigusamning til annars aðila. Verði leigutaki uppvís af slíku broti er heimilt að víkja fólki úr orlofeign fyrirvaralaust.

Afleiðingar þess er að viðkomandi er útilokaður frá leigu á orlofshúsum félagsins næstu 12 mánuði. Leigugjald er ekki endurgreitt í slíkum tilvikum.

Komi í ljós skemmdir á orlofshúsi eða munum sem því tilheyra, skal leigutaki tilkynna það á skrifstofu félagsins.

Leigutaki ber fulla ábyrgð á tjóni sem verður af hans völdum eða annarra sem í íbúðinni dvelja á leigutímanum.

áskilur félagið sér þann rétt að láta lagfæra orlofseign á kostnað leigutaka og senda viðkomandi reikning fyrir kostnaði sem af því hlýst. 

Hafi orlofseign verið skilað í óviðunandi ástandi þannig að félagið þurfi að láta framkvæma þrif á orlofseign áskilur félagið sér þann rétt að láta þrífa orlofseign á kostnað leigutaka.

Sektargjald vegna þrifa er kr. 25.000.