Rúmgóð íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi í Ásholti 2, rétt ofan við Hlemm. Í henni eru tvö svefnherbergi, stór stofa og borðstofa, eldhús og baðherbergi, sjónvarp, útvarp og öll venjuleg eldhúsáhöld og borðbúnaður. Allur rúmfatnaður er til staðar, sængur, koddar og lín.

Sameiginlegt þvottahús með þvottavél, þurrkara og strauvél er á jarðhæð.