Í húsi nr. 32 eru 3 lítil svefnherbergi, eitt með tvíbreiðu rúmi en hin með kojum í fullri stærð. Í húsinu er stofa-borðstofa með eldhúskrók og baðherbergi með sturtu. Stór verönd með heitum potti og sólskála. Húsinu fylgir öll venjuleg eldhúsáhöld og borðbúnaður, sængur og koddar, ræstiefni, salernispappír og gólfklútar og borðtuskur. Tuskum og klútum skal skilað að lokinni dvöl.

Dvalargestir þurfa að hafa með sér lín utan um sængurfatnað og handklæði. Í húsunum er útvarp, sjónvarp, örbylgjuofn og útigrill. Barnarúm og stólar fást hjá umsjónarmanni í þjónustumiðstöð.