Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, rúmgóð stofa með góðum svölum á móti suðri, eldhús með borðkrók og baðherbergi með sturtu. Í íbúðinni er sjónvarp og útvarp og öll venjuleg eldhúsáhöld og borðbúnaður. Dvalargestir þurfa að hafa með sér salernispappír.