Húsið er 45 m2. Í því eru 2 svefnherbergi, setu- og borðstofa með eldhúskrók og baðherbergi með sturtu. Í húsinu er svefnpláss fyrir 6 manns. Húsinu fylgja öll venjuleg eldhúsáhöld og borðbúnaður, sængur og koddar, ræstiefni og salernispappír. Dvalargestir þurfa að hafa með sér lín utan um sængurfatnað, handklæði, borðklúta og þurrkustykki. Í húsunum er útvarp, sjónvarp, örbylgjuofn og útigrill. Heitur pottur er við húsið.