Íbúðin er u.þ.b. 115 m2. Í henni eru 3 svefnherbergi, setu- og borðstofa, eldhús, þvottahús með þvottavél og baðherbergi með sturtu. Íbúðinni fylgja öll venjuleg eldhúsáhöld og borðbúnaður, sængur og koddar, ræstiefni og salernispappír. Dvalargestir þurfa að hafa með sér lín utan um sængurfatnað og handklæði. Í íbúðinni er útvarp, sjónvarp, örbylgjuofn og gasgrill.