1. gr. Fullgildir greiðandi félagsmenn njóta forgangs við úthlutun orlofshúsa TFÍ.
2. gr. Réttur til úthlutunar á orlofshúsi í sumar og páskaleigu byggist á félagsaldri í TFÍ (eftir að tveggja ára félagsaðild er náð) að frádregnum fyrri úthlutunum orlofshúsa.
3. gr. Úthlutunartímabil sumars er frá byrjun júní til enda ágúst samkvæmt ákvörðunorlofsnefndar.
4. gr. Páskaviku er úthlutað sérstaklega á sama hátt og sumarleigu. Útleiga og úthlutanireru auglýstar á heimasíðu félagsins.
5. gr. Þeir sem sótt hafa um hús en ekki fengið úthlutað fara á biðlista sem úthlutað er eftirfalli einhver frá sinni úthlutun.
6. gr. Ef umsókn berst ekki um einhverja/r af tilteknum vikum í sumarúthlutun verður húsinuúthlutað til þess sem fyrstur óskar en þó að teknu tilliti til þeirra sem áttu umsóknir enfengu ekki úthlutun. Leigu skal inna af hendi eigi síðar en 4 vikum fyrir ætlaðanleigutíma, að öðrum kosti getur leigutaki ekki gert ráð fyrir að ganga að úthlutun sinnivísri.
7. gr. Ef umsækjandi sem greitt hefur leigugjald óskar að hætta við leigu fær hannendurgreitt svo framalega að húsið leigist öðrum.
8. gr. Að loknum sumartíma, frá byrjun september til loka maí að páskum undanskildum,gildir venjuleg vetrarleiga en þá er leigu skipt upp í helgar og virkra daga leigu,fimmtud/sunnud og sunnud/fimmtud. Umsóknir um vetrarleigu eru afgreiddar í þeirriröð sem þær berast.
9. gr. Verði félagsmaður áskynja eða valdi tjóni á húsbúnaði eða húseignum félagsins skalsá hinn sama tilkynna slíkt strax til orlofsnefndar TFÍ. |