Húsið er 52 fm og skiptist í anddyri, stofu og eldhús í sameiginlegu rými, tvö svefnherbergi (eitt stórt og annað minna með upplyftri koju) baðherbergi og upphitaðri útigeymslu með þvottav./þurrkara.

Verönd er við húsið með heitum potti, garðhúsgögnum og gasgrilli. Svefnpláss er fyrir 4-5 en það eru ekki aukadýnur í húsinu.

Gistiaðstaðan er þannig að í öðru herberginu er rúm 180x200 og hinu 140x200 (ásamt koju 70x180), að öðru leyti er það fullbúið öllum almennum búnaði.

Almennar upplýsingar um landsvæðið má nálgast á https://www.west.is/is/

Lyklar eru í lyklaboxi með talnakóða sem leigutakar fá á leigusamningi.

Göngustígur að húsinu er á bílaplani fyrir neðan. Einnig er hægt að koma að húsinu á bílaplan að ofanverðu.

ATH!

Þrif á orlofshúsi eru ekki innifalin í leigugjaldi.

Leigutaki þarf að taka með sér baðhandklæði, borðtuskur, salernispappír, ruslapoka, viskustykki og tuskur til þrifa. Það sem er til staðar eru moppur til að skúra með, áhöld og efni til þrifa. Einnig þurfa gestir að hafa með sér allan rúmfatnað og nota hann í öllum tilfellum. Leigutaki þrífur sjálfur, þ.a. umgengni og frágangur orlofshúsa er alfarið á þeirra ábyrgð og til þess er ætlast að fólk skili af sér eins og það sjálft vill koma að þessum eignum.