Leita

Tímabil:
 
 
Stærð:
Vinsælar eignir Fleiri eignir >>
  • Flúðir - Sléttuvegur 5

  • Í húsinu eru þrjú svefnherbergi með samtals 9 svefnstæðum ásamt samanbrotnu barnarúmi, þá eru einnig 2 lausar dýnur sem hægt er að leggja á gólfin.  Húsið er leigt með 11 sængum og koddum, án sængurvera. Húsinu fylgir allur almennur búnaður sem eðlilegt er að fylgi til venjulegs heimilishalds og má þar t.d. nefna, boðbúnaður fyrir 10-12 manns, uppþvottavél og þvottavél, þurrkari, sjónvarp og gasgrill. Stór og góð verönd er umhverfis húsið og heitur pottur fyrir 8 manns. Þráðlaust net er í boði í bústaðnum. Leigutaki þarf að hafa með sér: sængurver handklæði sápu glasaþurkur þrifklúta W.C. pappír annað sem snýr að hans persónulegu þörfum.  ATH! Vetrarleiga er ÁN þrifa. Hægt er að kaupa þrif með því að hafa samband í síma  866 1166 (Heiða). Þrif kosta 10.000 kr. og greiðast á staðnum. Kóði að lyklahúsi sem staðsett er á vegg við hlið útihurðar fæst uppgefinn samhliða leigutöku hverju sinni.

  • Nánar >>
  • Munaðarnes - Eyrarhlíð 40

  • Húsið er 52 fm og skiptist í anddyri, stofu og eldhús í sameiginlegu rými, tvö svefnherbergi (eitt stórt og annað minna með upplyftri koju) baðherbergi og upphitaðri útigeymslu með þvottav./þurrkara. Verönd er við húsið með heitum potti, garðhúsgögnum og gasgrilli. Svefnpláss er fyrir 4-5 en það eru ekki aukadýnur í húsinu. Gistiaðstaðan er þannig að í öðru herberginu er rúm 180x200 og hinu 140x200 (ásamt koju 70x180), að öðru leyti er það fullbúið öllum almennum búnaði. Almennar upplýsingar um landsvæðið má nálgast á https://www.west.is/is/ Lyklar eru í lyklaboxi með talnakóða sem leigutakar fá á leigusamningi. Göngustígur að húsinu er á bílaplani fyrir neðan. Einnig er hægt að koma að húsinu á bílaplan að ofanverðu. ATH! Þrif á orlofshúsi eru ekki innifalin í leigugjaldi. Leigutaki þarf að taka með sér baðhandklæði, borðtuskur, salernispappír, ruslapoka, viskustykki og tuskur til þrifa. Það sem er til staðar eru moppur til að skúra með, áhöld og efni til þrifa. Einnig þurfa gestir að hafa með sér allan rúmfatnað og nota hann í öllum tilfellum. Leigutaki þrífur sjálfur, þ.a. umgengni og frágangur orlofshúsa er alfarið á þeirra ábyrgð og til þess er ætlast að fólk skili af sér eins og það sjálft vill koma að þessum eignum.

  • Nánar >>