Arnarborg 8 á Stykkishólmi er 85 fermetrar orlofshús félagsins rétt fyrir utan Stykkishólm.
Það samanstendur af anddyri, stofu, borðstofu og eldhúsi. Í því eru þrjú svefnherbergi. Eitt hjónaherbergi með rúmi sem er 150 cm, eitt herbergi með rúmi sem er 135 cm að stærð og eitt kojuherbergi 2x 80X200 cm dýnur, eða svefnstæði fyrir allt að sex á neðri hæð.
Svefnloft og sjónvarpsloft er yfir hluta hússins og tveir geta gist á efri hæðinni, þ.e. 2 í svefnsófa og ásamt því er einnig tvær dýnur sem eru fyrir ca 70 kg. 10 sængur og koddar eru í húsinu. Hafa verður með rúmfatnað. Gistimöguleiki er því fyrir allt að 8 í rúm og svefnsófa ásamt tveimur dýnum þ.e. fyrir utan barnaferðarúm.
Í eldhúsi er ísskápur, eldavél, bakarofn og uppþvottavél. Gasgrill er í húsinu.
Eitt baðherbergi er í húsinu með sturtu og einnig er þvottavél. Stór og góð verönd er ásamt heitum potti og tveimur útigeymslum.
Gestir þurfa að taka með sér baðhandklæði, borðtuskur, salernispappír, ruslapoka, viskustykki og tuskur til þrifa. Það sem er til staðar eru áhöld og efni til þrifa. Einnig þurfa gestir að hafa með sér allan rúmfatnað og nota hann í öllum tilfellum. Þetta gildir um öll hús á vegum Starfsmannafélags Kópavogs.
Hægt er að panta skilaþrif hjá umsjónarmanni gegn greiðslu 15.000 krónur. Panta þarf þrif með sólarhrings fyrirvara. Greiðslur vegna þrifa fara ekki í gegnum félagið.
Í Arnarborg eru leyfð gæludýr.
Upplýsingar um heitan pott:
Þegar pottur er settur í gang er ýtt á Start, þá lokast botnlokinn og vatn rennur í hann.
Þegar kveik er á pottinum þá rennur kalt og heitt vatn í pottinn og eftir ákveðinn tíma (eftir stærð potta) lokast fyrir kalda vatnið og eingöngu heitt vatn rennur í. Eingöngu fer heitt vatn í pottinn eftir áfyllingu. Ekki er notaður blöndunarloki við áfyllingu.
Ekki er hægt að stilla hitastig hærra en 41 gráðu.
Ef potturinn ofhitnar og fer í 45 gráður þá stoppar potturinn og tæmist, Exti kemur á skjáinn um að potturinn sé of heitur, ekki er hægt að setja hann á stað aftur fyrr en hitinn er kominn í 41 gráðu. Aðvörunin fer ekki af fyrr en pottur er ræstur á ný. (Ef pottur ofhitnar þarf að athuga hvað er að)
Einnig er köld innspýting valmöguleiki ef á að kæla pottinn, þá þarf að lækka óskhitann í það hitastig sem beðið er um og ýta á köldu innspýtinguna og er hún á í eina mínútu og ef það nægir ekki til að ná settu hitastigi er ýtt aftur á kalda innspýtingu.
Ef hitanemi bilar þá stoppar potturinn og tæmist, texti kemur á skjáinn um að athuga hitanema. Ekki er hægt að kveikja á pottinum fyrr en búið er að lagfæra hitanema.
Á snertiskjánum eru takkar neðst F1,F2,F3,F4. Ef ýtt er á F1 kemur upp skýringartexti, ef ýtt er aftur á F1 þá kemur skjámyndin fyrir pottastýringuna.
Þegar pottur er tæmdur er ýtt á Stopp og eftir 30 sec þá rennur vatn úr pottinum.