Kiðárskógur 1 er 64fm sumarhús á einni hæð með lokuðum palli allt í kring og  heitum potti. Í húsinu er uppþvottavél og þvottavél. Svefnaðstaða: Í húsinu er þrjú svefnherbergi eru í húsinu í þeim er eitt hjónarúm (160 x 200)  og 2 kojur með tvíbreiðri neðri koju ( efri kojur 90 x 200 neðri kojur 120 x 200 og 140 x 200) og því gistirými fyrir 8 auk barnarúms. Í gestahúsi hjá húsinu eru 2 gestarúm til viðbótar. 

Framsal leigusamnings: Bústaðurinn er sameign félagsmanna í Stétt Vest - keypt og rekin af félagsmönnum. Við megum ekki framselja leigusamninginn án leyfis félagsins, með því að nota þitt nafn til að bústaðinn fyrir einhvern utan félagsins ertu að brjóta m.a á vinnufélögum þínum og öðrum félagsmönnum. Þeir sem eru utan Stétt Vest eiga að leigja bústaði hjá sínu stéttarfélagi. 

Reykingar og veip: Skiltið um að reykingar og veip séu bönnuð í bústaðnum  er ekki til skrauts - reykingar og veip er í alvöru bannað í bústaðnum 

Internet á staðnum lykilorðið er stettvest Vinsamlegast takið router ekki úr sambandi

Leigjandi þarf sjálfur að sjá um brottfaraþrif og henda rusli. 

Gæludýr eru velkomin í húsið