Gistimiðar
- Félögum er bent á að panta gistingu áður en hótelmiðar eru keyptir.
- Prenta þarf út hvern hótelmiða sem er síðan afhentur við innritun á viðkomandi hótel, miðinn er greiðsla fyrir gistingu
Ef herbergi er bókað á vefmiðlum, svo sem heimasíðu hótelsins, eða öðrum vefmiðlum, er ekki hægt að greiðafyrir gistinguna með greiðslumiða frá stéttarfélagi, þar sem gestur hefur þá skuldbundið sig til að greiða við komuá hótel þá upphæð sem hann samþykkir við bókun.
Við bókun skal handhafi hótelmiða hafa samband við hótel í síma eða með tölvupósti.
Fram skulu koma þessar upplýsingar:
- Að greitt sé með gistimiða frá félaginu
- Kreditkortanúmer til staðfestingar á bókun.
- Komu dagsetning með áætlaðan komu tíma á hótel (ef hægt er að verða við því) og brottfarardagsetning.
- Fjöldi herbergja og tegund þeirra.
- Óskir um aðra þjónustu t.d. morgunverð.