Nýstárleg hönnun og mjög skemmtilegt hús á einni hæð.  Stofan er góð með borðstofuborði fyrir 8 manns. Í eldhúsi eru öll tæki fyrsta flokks, m.a. uppþvottavél og örbylgjuofn.  Tvö baðherbergi eru í húsinu, annað með sturtu en hitt með þvottavél og þurrkara.

Gistiaðstaða er fyrir 8 manns. Sængur og koddar fyrir 8 manns. Svefnherbergi eru 4. Eitt með hjónarúmi (king size), tvö með 160 cm breiðu rúmi (queen size plus)  og hið þriðja með tveimur 90 cm rúmum sem eru rennd saman en hægt er að renna þeim í sundur til að gera úr þeim tvö aðskilin rúm.  Ferðabarnarúm og barnamatarstóll eru í húsinu.  

Í húsinu eru hreinlætisvörur og wc pappír.  Taka þarf með rúmföt, lök, handklæði, viskustykki og borðtuskur.

Húsið stendur efst í orlofshúsabyggðinni og útsýnið er stórkostlegt.  Fjölskrúðugt fuglalíf á sumrin.  Aðeins 3 km í miðbæ Stykkishólms. Húsið er stórglæsilegt með góðri verönd, glæsilegum útihúsgögnum, gasgrilli og heitum potti.

Best er að koma að húsinu af veginum sem liggur meðfram útihúsunum og er beygt inná hann hjá kirkjugarðinum.  Keyrt áfram og í gegnum skógræktarlundinn og er þá húsið það fyrsta á hægri hönd þegar komið er út úr skóginum.