Íbúðin er í fjögurra íbúða húsi, með sér inngangi og sér garði.  Gistirými er fyrir sex manns.  Á fyrstu hæð eru stofa, eldhús, 2 svefnherbergi og baðherbergi.  Á annari hæð er 1 svefnherbergi og baðherbergi með sturtu.  Af annari hæðinni er gengið út á sólarverönd þar sem eru sólhúsgögn, þvottavél og þurrkari.  Internet er í húsinu. 

Á verönd fyrir framan húsið eru útihúsgögn og gasgrill.  Staðsetning hússins er um 15 km suður af Torrevieja, það er nálægt 3 verslunar/matsölukjörnum (um 10-20 mín. gangur).  Stutt í laugardagsmarkaðinn á Costa Flamenca.  Verslunarmiðstöðin "Zenia Boulevard" er í um fimm mínútna akstursfjarlægð.

Eigendur í Brisas Y Golf III halda úti bloggsíðu með alls konar upplýsingum sem eiga við í nærhverfinu; http://brisasgolf3.com 

Hér er kort af stærstu verslunarmiðstöð Evrópu sem var opnuð 2012 Zenia Boulevard:

 

Starfsaldursstyrkur er 75% af leiguverði hússins, að hámarki af verði tveggja vikna.  Þeir sem hafa starfað hjá Garðabæ í fimm ár eða lengur geta sótt um þennan styrk til orlofsnefndar, eftir að úthlutun hefur farið fram.