Rúmgóð stofa, eldhús með eldavél, bakaraofni, uppþvottavél og örbylgjuofni. Baðherbergi með sturtu, tvö svefnherbergi annað með hjónarúmi og hitt með einni og hálfri breidd og einbreiðu rúmi. Barnarúm og barnamatarstóll.
Gistiaðstaða fyrir 5-6 manns. Sængur og koddar fyrir 8 manns. Á háalofti eru svefnsófi, lausar dýnur, sjónvarp og dvd spilari.
Í húsinu eru hreinlætisvörur og wc pappír. Taka þarf með rúmföt, lök, handklæði, viskustykki og borðtuskur.
Í Reykjabæ er leyfilegt að vera með gæludýr.
Þetta er rúmgott og bjart hús með fínum herbergjum og góðri verönd, falleg útihúsgögn, gasgrill og heitur pottur. Orlofshús í fallegu umhverfi nálægt Brúará.
Á sumrin (maí - sept) er boðið er upp á veiðileyfi í ánni Fullsæl, sem rennur í Brúará. Nánari upplýsingar eru í bústaðnum.