Nýbyggt hús á sömu lóð og gamli bústaðurinn var.  Húsið er stórglæsilegt með góðri verönd, heitum potti, gasgrilli og útihúsgögnum. Það er á einni hæð með góðum kjallara.  Húsið er mjög rúmgott og með góðum hirslum.  Stofan er björt  með góðu útsýni yfir flugvöllinn og fjörðinn.  Í eldhúsi eru öll tæki fyrsta flokks.  Í húsinu eru þrjú svefnherbergi og eitt baðherbergi. Í kjallaranum er þurrkaðstaða fyrir skíðabúnað, þar er einnig þvottavél.

Gistiaðstaða er fyrir 6 manns. Sængur og koddar fyrir 8 manns. Eitt herbergi er með hjónarúmi 180 cm breiðu, eitt herbergi með 2x 90 cm breiðum rúmum og eitt herbergi með 2x 80 cm breiðum rúmum, í báðum þessum herbergjum er hægt að renna rúmunum saman. Ferðabarnarúm og barnamatarstóll eru í húsinu. Auk þess eru 2 vindsængur í húsinu.

Í húsinu eru hreinlætisvörur og wc pappír.  Taka þarf með rúmföt, lök, handklæði, viskustykki og borðtuskur.

Húsið stendur ofarlega í orlofshúsabyggðinni og útsýnið er stórkostlegt.   Mikið er um kanínur í skóginum í kring og á svæðinu og gaman að fara í göngutúr í Kjarnaskógi.  Aðeins 7 km eru í miðbæ Akureyrar.