Nýstárleg hönnun og mjög skemmtilegt hús.  Í eldhúsi eru öll tæki fyrsta flokks, m.a. uppþvottavél og örbylgjuofn.  Baðherbergi er með sturtu og þvottavél.

Gistiaðstaða er fyrir 6 manns. Sængur og koddar fyrir 8 manns. Svefnherbergi eru 3. Eitt með hjónarúmi (king size), annað með 140 cm breiðu rúmi (queen size)  og hið þriðja með 90 cm kojum. Ferðabarnarúm og barnamatarstóll eru í húsinu.  Á háalofti eru svefnsófi, sjónvarp, video og dvd, þar eru líka 3 dýnur. 

Í húsinu eru hreinlætisvörur og wc pappír.  Taka þarf með rúmföt, lök, handklæði, viskustykki og borðtuskur.

Húsið stendur innst í orlofshúsabyggðinni og útsýnið er stórkostlegt. Fjölskrúðugt fuglalíf á sumrin. Aðeins 3 km í miðbæ Stykkishólms. Húsið er stórglæsilegt með góðri verönd, glæsilegum útihúsgögnum, gasgrilli og heitum potti.