Við sumarúthlutun gilda eftirfarandi reglur: - Úthlutun fer sjálfkrafa fram í orlofskerfinu.
- Úthlutað er eftir punktastöðu félagsmanna, því hærri sem punktaeign er því meiri líkur á að fá úthlutað.
- Lágmarksfjöldi punkta fyrir úthlutun er 36.
- Félagsmaður hlýtur 1 punkt fyrir hvern mánuð sem félagsgjald greitt er í STAFF.
- Sæki fleiri en einn félagsmaður um hús í sömu viku hlýtur sá sem á hæstu punktastöðu af umsækjendum þá viku.
- Hafi félagsmaður valið fleiri en einn valmöguleika fer kerfið þá í næsta valmöguleika félagsmanns og svo koll af kolli þar til annaðhvort hlýst úthlutun eða öllum valmöguleikum er synjað.
- Við mælum því með að nýta alla valmöguleika þar sem líkurnar á að fá úthlutun aukast þá til muna.
- Að úthlutun lokinni er gefinn vikufrestur til þess að greiða fyrir úthlutun, að öðrum kosti verður húsið laust til bókunar þegar fresturinn rennur út.
|