ENDURGREIÐSLA Afpöntuð orlofsleiga
Bókaðar og greiddar orlofsleigur eru ekki endurgreiddar. Ef afpantað er með lengri en tveggja viknafyrirvara myndast inneign sem nýtist umsækjanda við næstu umsókn. Ef afpantað er með tveggjavikna eða styttri fyrirvara myndast ekki inneign nema húsið leigist aftur. Abókanir þurfa að sendast á netfangið staff@icelandair.is
FRAMLEIGA Félagsmaður skal ávallt vera með í för á leigutíma og er óheimilt að framleiga eignum STAFF til þriðjaaðila.
ÞRIFGJALD Ef leigjandi kemur að húsi sem er illa þrifið og getur sýnt fram á það með myndum áskilur STAFF sérrétt til þess að fara fram á greiðslu fyrir þrif hjá fyrri leigjanda í samræmi við almennt þrifgjald semkemur fram á greiðslukvittun. Þrifsekt: 25.000.- kr gegn myndum
ÁBYRGÐARSKILMÁLAR Leigjandi ber ábyrgð á öllum búnaði hússins meðan á leigutíma stendur og skuldbindur sig til þess aðbæta það tjón sem verða kann af hans völdum eða þeirra sem dvelja á hans vegum í húsinu áleigutíma.
VARNAÞING Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða teljieinhver að hann eigi kröfu á hendur félagsins á grundvelli ákvæða og skilmála, verður slíkumágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.
TRÚNAÐUR Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslumvið viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
|