Ekið er eftir þjóðvegi 1 frá Akureyri í átt að Húsavík og þegar komið er að útsýnisstað í Vaðlaheiði er afleggjari á hægri hönd merktur Varðgjá. Þar er ekið nánast alla leið upp þar til komið er að afleggjara á hægri hönd merktum Kotabyggð. Þar er beygt inn og farið strax aftur til hægri niður brekkuna í átt að Villa Lola. Húsið okkar stendur alveg innst í götunni á vinstri hönd.
Í húsinu eru 4 svefnherbergi, eitt á neðstu hæð með sérinngangi. Þar er tvíbreitt rúm ásamt salerni og þvottaaðstöðu með þvottavél. Á miðhæð eru þrjú svefnherbergi með tvíbreiðum rúmum. Á svefnlofti er einnig tvíbreitt rúm ásamt auka dýnum og rimlarúmi.
Öll rúm eru búin sængum og koddum en þó þarf að taka með eigin sængurföt, salernispappír, eldhúsrúllur, handklæði og tuskur. Öll nauðsynleg hreinsiefni eiga að vera til staðar í húsi við komu.
Öll hús STAFF eru búin öllum nútímaþægindum s.s. eldavél, ofni, uppþvottavél og sjónvarpi og öllum nauðsynlegum borðbúnaði, ásamt grilli og heitum potti á útisvæði.
Í eldhúsi eru þrjár kaffikönnur, ein til uppáhellingar, önnur má eingöngu nota ómalaðar kaffibaunir í og þriðja er Nespresso vel (þarf að koma með hylkin sjálf) .
ATH: Ekki fikta í hita stillunum. .. Það er stranglega bannað að slökkva á hitanum í húsinu.