Húsið stendur neðst við Oddeyrargötu sem liggur í beinu framhaldi af Gránufélagsgötu ef ekið er inn frá Glerárgötu. Lítið bílastæði er við húsið en annars má leggja við götuna.

 

Húsið er á þremur hæðum. Gengið er inn á miðhæð þar sem er aðalrými með eldhúsi og stofu. Í kjallara eru tvö svefnherbergi með tveimur einbreiðum rúmum í hvoru herbergi ásamt baðherbergi og þvottaaðstöðu. Hægt er að ganga inn í kjallarann frá miðhæð en einnig er þar sérinngangur. Á efstu hæð hússins eru svo baðherbergi og svefnherbergi með einu tvíbreiðu rúmi og tveimur einbreiðum rúmum.

 

Öll rúm eru búin sængum og koddum en þó þarf að taka með eigin sængurföt, salernispappír, eldhúsrúllur, handklæði og tuskur. Öll nauðsynleg hreinsiefni eiga að vera til staðar í húsi við komu.

 

Hús STAFF eru búin öllum nútímaþægindum s.s. eldavél, ofni, uppþvottavél og sjónvarpi og öllum nauðsynlegum borðbúnaði, ásamt grilli á útisvæði. Kaffivél er uppáhellingarvél og Nespresso vél

 

ATH að enginn heitur pottur er við húsið á Oddeyrargötu.

Við viljum minna fólk að það er Frískápur fyrir mat við bókasafnið hinum megin við götuna.