Íbúð 2969 Cottage Grove Ct, 32822 Orlando FL.


Það tekur um 10 minútur að aka frá Orlando flugvelli til Ventura Country club þar sem 

íbúðin er. 

Leigubíll kostar ca. 40 dollara. 


Tveir inngangar eru að Ventura svæðinu og þarf að sýna skilríki við komuna.


Íbúðin er á jarðhæð og gengið inn vinstra megin við bílskúr. Í andyri er lyklabox með kóða

Við brottför skal muna að setja lykilinn aftur í lyklaboxið og passa að allar hurðar séu læstar.


Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi og svefnpláss fyrir 5, 1 kingsize rúm í hjónaherbergi, 1 queen size rúm í gestaherbergi og

1 einstaklingsrúm í gestaherbergi. Sængurfatnaður fyrir 5 er í íbúðinni, handklæði og teppi.


Velkomin/n í sumarhús STAFF í Orlando. 

Frá flugvellinum er um 20 mín akstur að íbúðinni. Tvær aðkomur eru að svæðinu, annars vegar frá Pershing Avenue eða Curry Ford Road. Við fyrstu komu og ef komið er eftir kl 23:00 þarf að nota aðalhlið við Curry Ford Rd.

Sjá kort

Við hliðið þarf að sýna leigusamning eða tölvupóst um að þið séuð með íbúð á leigu á þessu svæði. 

Svo þegar inn á svæðið er komið þá skrifið þið 3900 Southpointe Drive, keyrt inn um Atrium Drive. 

Látið öryggisgæslu vita ef þið eigið von á gestum eða sendingum. Það er stranglega bannað að láta senda vörur í íbúðina fyrir aðra en þá sem þar gista hverju sinni. Símanúmer öryggisgæslu er 407-380-5672.

Íbúðin er númer 127 á 2. hæð í Oasis byggingu 2. 

Handhæg símanúmer:

Admin office 407-275-7002 

Curry Ford hlið 407-382-3038

Golf shop 407-277-2640

Daginn eftir komu verðið þið að fara í Ventura Club Administration Office (skrifstofa í næsta húsi við klúbbhúsið), skrá ykkur inn á svæðið og þar getið þið fengið spjald/merki í bílinn fyrir $10. Með þetta merki þá þurfið þið ekki að stoppa við hliðin og sýna skilríki í hvert skipti sem þið farið inn á svæðið aftur. Merkið þarf alltaf að vera sýnilegt í bílnum. Hverfið er lokað og vaktað.

Koma í fyrsta lagi kl 18:00

Brottför í síðasta lagi kl 13:00

Lykillinn að húsinu er í lyklahúsi við útidyr og er númerið að lyklahúsinu gefið upp á kvittun við bókun. Þetta er aukalykill sem skal setja aftur í lyklaboxið. Aðallykill er í skál á barboði. Vinsamlega passið að setja aðallykil aftur í skál og að aukalykill sé í lyklahúsi við brottför.

Við komu stillið loftræstingu á 23°C. Ef haft er opið út slökkvið á kælingunni þar sem mikið álag getur orðið á kælivélinni ef heitt er úti. Við brottför verður að stilla hitann á 27°C.

Það er heitavatnsgeymir í íbúðinni svo það er takmarkað heitt vatn.

Vinsamlegast skerið eingöngu á skurðarbrettum og skiljið ekki eftir mat óvarinn á borðum, forðist að matarleifar eða brauðmylsna liggi á borðum eða gólfum þar sem maurar eru fljótir að finna þær og mæta á svæðið.

Gangið vel frá öllu sorpi, bindið vel fyrir poka og setjið í ruslagám sem er við bílastæðin (grá trégirðing er í kringum þá).

Sími er í íbúðinni og er númerið 407-286-0761. Langlínulás er á símanum. Öll innanbæjarsímtöl á Orlando svæðinu eru gestum að kostnaðarlausu. Til að hringja annað þá er hringt í 800-964-5232 og kostnaður er færður á kreditkort viðkomandi. 

Þráðlaust net er til staðar í öllum húsum STAFF.

Password: io3900io

Hverfið okkar heitir Oasis I.

Hvítt rafrænt spjald er í íbúðinni í skál á barborði. Það veitir aðgang að klúbb sundlauginni (gildir fyrir 6 manns) og í líkamsræktina í Klúbbhúsinu (ekki hægt að opna hurðina inn í ræktina öðruvísi en að renna kortinu yfir nema við hurð).

Mikilvægt er að skilja það alltaf eftir í skálinni við brottför.

Alltaf hægt að fara með kortið í Administration office og láta uppfæra það án kostnaðar ef það virkar ekki. 

Til að fara í sundlaugina í bakgarði Oasis I og II þarf að hafa hvíta kortið með sér til að sýna ef eftirlitsmenn koma á svæðið.

Umsjónarmaður: Ron Noyes s: 407-947-4716. Skilja þarf eftir $100 fyrir þrif við brottför.

Vinsamlega hringið ekki í umsjónarmenn seint um kvöld nema í algerum neyðartilvikum.

Sumarhús STAFF eru eign allra félagsmanna. Vinsamlega gangið vel um húsin og gangið frá þeim við brottför eins og þið viljið koma að þeim sjálf. Skiljið ekkert eftir í ísskápum og frystihólfum og skiljið eingöngu eftir krydd, kaffi og te í skápum.

Athugið að gæludýrahald er með öllu óheimilt í íbúðinni.

Við vitum að ýmislegt getur komið upp á svo ef eitthvað skemmist eða ykkur finnst eitthvað vanta í húsin vinsamlega hafið samband við STAFF með tölvupósti (staff@icelandair.is) eða í síma 852-9131.

Með von um ánægjulega dvöl,

Stjórn STAFF