Tvær leiðir eru að húsinu á Flúðum. Þegar ekið er frá Reykjavík eftir Skeiðárvegi er farið yfir brú við Stóru Laxá. Strax eftir að farið er yfir brúna er beygt til vinstri inn á veg þar sem stendur Ásatún/Syðra Langholt. þessi vegur er ekinn þangað komið er að afleggjara inn í sumarhúsabyggðina sem heitir Heiðarbyggð. Ef ekið er inn að Flúðum, er haldið beint áfram í gegnum bæinn framhjá Samkaup og framhjá grunnskólanum. Ekið beint af augum þangað til komið er að afleggjara til vinstri sem á stendur Heiðabyggð. Strax eftir afleggjarann við Ásatúns golfvöllinn. Þessi vegur er í raun í hringvegur í kringum fjallið.

 

Fjögur svefnherbergi eru í húsinu og svefnpláss fyrir 8 manns. Þrjú svefnhergjanna eru með tvíbreiðum rúmum og eitt með tveimur einbreiðum rúmum. Barnarúm er í skáp í innsta herbergi.

 

Öll rúm eru búin sængum og koddum en þó þarf að taka með eigin sængurföt, salernispappír, eldhúsrúllur, handklæði og tuskur. Öll nauðsynleg hreinsiefni eiga að vera til staðar í húsi við komu.

 

Öll hús STAFF eru búin öllum nútímaþægindum s.s. eldavél, ofni, uppþvottavél og sjónvarpi og öllum nauðsynlegum borðbúnaði, ásamt grilli og heitum potti á útisvæði. vinsamlegast hreinsið vel ofn og jheita pottinn.

 

Í húsinu er þvottavél, þurrkari og kaffikanna til uppáhellingar sem og Nespresso kaffivél (munið eftir hylkjum)


Ruslagámar eru í hlíðinni, ferð beint upp frá afleggjaranum, hjá  Kennarasambands bústöðunum. Þar eru gámar, vinsamlegast setjið í rétta gáma.