Ekið er inn í Húsafell og fljótlega skiptist vegurinn í tvennt og er þá ekið vinstra megin þangað til komið er að afleggjara á hægri hönd sem vísar á Hraunbrekkur og Odda. Þar er beygt og síðan tekin fyrsti afleggjari til vinstri sem vísar á Kiðárbrekkur. Þar er ekið inn í botn og blasir þá húsið okkar við.
Í húsinu eru 4 svefnherbergi. Tvö á neðri hæð með tvíbreiðum rúmum ásamt einu með koju sem er tvíbreið neðri koja og einbreið efri koja. Á efri hæð er eitt svefnherbergi með tveimur einbreiðum rúmum en einnig er tvíbreiður svefnsófi í sjónvarpsholi. Barnarúm er til staðar inni í skáp í einu herbergjanna á neðri hæð.
Öll rúm eru búin sængum og koddum en þó þarf að taka með eigin sængurföt, salernispappír, eldhúsrúllur, handklæði og tuskur. Öll nauðsynleg hreinsiefni eiga að vera til staðar í húsi við komu. Ef eitthvað af hreinsiefnum vantar vinsamlegast sendið tölvupóst á staff@icelandair.is
Öll hús STAFF eru búin öllum nútímaþægindum s.s. eldavél, ofni, uppþvottavél og sjónvarpi og öllum nauðsynlegum borðbúnaði, ásamt grilli og heitum potti á útisvæði.
Í eldhúsi er uppáhellings kaffikanna og Nespressovél.
Í útihúsi er þvottavél og þurrkari ásamt litlum ísskáp. Lykill að útigeymslu hangir þar við dyrnar. Gasgrill er að finna í útigeymslunni.
Gæludýrahald er leyft í húsinu í Húsafelli en við biðjum ykkur vinsamlega að halda þeim frá rúmum og passa upp á að þau séu ekki laus utandyra.