Þegar komið er framhjá flugvellinum er ekið um 500 metra áður en komið er að afleggjara á hægri hönd merktum Arnarborg. Þar er ekið inn og húsið okkar er þriðja hús og er STAFF skilti við innkeyrsluna.
Í húsinu eru 3 svefnherbergi ásamt svefnlofti. Tvö svefnherbergjanna og svefnloftið eru búin tvíbreiðum rúmum og þriðja herbergið er búið einbreiðu rúmi.
Öll rúm eru búin sængum og koddum en þó þarf að taka með eigin sængurföt, salernispappír, eldhúsrúllur, handklæði og tuskur. Öll nauðsynleg hreinsiefni eiga að vera til staðar í húsi við komu.
Öll hús STAFF eru búin öllum nútímaþægindum s.s. eldavél, ofni, uppþvottavél og sjónvarpi og öllum nauðsynlegum borðbúnaði, ásamt grilli og heitum potti á útisvæði.
ATH: Það er Nespressó kaffivél (muna eftir hylkjum)
Í húsinu er þvottavél, þvottagrind og uppáhellings kaffikanna.