Það tekur tæpa hálfa klukkustund að aka frá Malaga flugvelli til Los Boliches. Leigubíll kostar ca. 70 evrur. Lest gengur á hálf tíma fresti og er ca 30 min frá flugvelli á lestarstöð ykkar sem heitir LOS BOLICHES . Verðið er um 3,50 evrur.

Mynd af korti fylgir og merkt er með rauðu bæði húsið og lestarstöðin.

Sjá kort

Inngangur 4, 6.hæð íbúð 6D.

ATH sami lykill og á útidyrahurð. Nálgast skal lykil hjá Staff fyrir brottför og skila honum aftur strax eftir heimkomu. Annað sett af lyklum er í íbúðinni á snaga í fatahengi.

Athugið að skilja lykla eftir í skrá einungis yfir nóttina. Ef lykillinn er í skránni yfir daginn, er ekki hægt að opna með lykli utan frá (ef til þess kemur að þið þyrftuð aðstoð utanaðkomandi ). Við brottför skal muna að tvílæsa hurðinni og loka öllum gluggum.


Í íbúðinni er svefnpláss fyrir 4 og barnarferðarúm. Einnig er aukadýna í öðru herberginu. Íbúðin er búin nútíma þægindum, s.s. þvottavél, sjónvarpi og útvarpi/geislaspilara.

Sængurföt, handklæði , tuskur og viskustykki er í íbúðinni, en bendum við ykkur á að taka með ykkur stór strandhandklæði því ekki er leyfilegt að taka handklæðin úr íbúðinni til að taka með sér á ströndina. Passið að setjast ekki í sófann með sólaroliu. Höldum honum hreinum og fínum.


Loftkæling er í íbúðinni og er hún mjög rafmagnsfrek. Þegar farið er út skal slökkva á henni, hún er mjög fljót að kæla aftur við heimkomu. Einnig skal slökkva á henni ef opið er út á svalir. Bendum gestum okkar á að hægt er að sofa við opna glugga ef netglugginn er settur fyrir, en þá skal einnig slökkva á kælingunni. Gott er að kaupa moskítósprey  og nota það á kvöldin og á nóttunni. Ef það er gert þarf ekki að skipta eins oft um moskítu pillur í moskitó-tækjum sem eru í sambandi við innstungur. Annars þarf að gera það á hverju kvöldi. Pillurnar fást í matvöruverslunum, ef engar eru í skúffu í eldhúsi.  

 

Svalir eru á íbúðinni þar sem sól kemur seinnni part dags. Athugið að ekki er hægt að opna svalir utan frá og varast skal að loka alveg svalahurðinni ef enginn er innandyra. Þegar setið er á svölum er gott að hafa net-hurðirna fyrir. Með því kemst enginn fluga inn og enginn hætta á að læsast úti á svölum. Athugið að hafa rimlagardínur niðri þegar þegar lítil börn eru í íbúðinni. Pössum börnin á svölunum, þær eru ekki mjög barnvænar. 


Athugið að einn umgangur af sængurfatnaði og handklæðum verður að vera hreinn fyrir næstu gesti. Það má ekki hengja handklæði á stóru svalirnar, það eru húsreglur í anddyri hússins. Nota snúrur fyrir utan eldhúsgluggan, en athugið að þær eru mjög varasamar og farið varlega. Betra er að nota þvottagrind sem er á svölunum, en skilja hana eftir innandyra þegar farið er út, annars er hætta á að línið getið fokið af svölunum.

2 Sundlaugar eru í garðinum, gengið inn í garðinn gegnum bílakjallarann (milli inngang 2 og 4). Þar er mjög skemmtileg aðstaða en fáir bekkir. Með plasthólknum á lyklakippunni, er lykill fyrir hliðið að sundlauginni. 

Sjoppan í BP bensinstöðinni (að ofanverðu við íbúðarblokkina) er opin til kl. 22. Þar fæst mjólk, brauð og aðrar nauðsynjar. 


Skiljið eftir 80 evrur eftir fyrir þrifum.


Við heimferð: Ef einhver póstur er opnið hann, takið mynd of sendið á staff@icelandair.is. Henda öllu rusli! Það eru rusl "hólkar" beggja vegna við blokkina, á strandgötunni og einnig á götunni fyrir afttan íbúðarkjarnann.  . Ekki skilja eftir neitt matarkyns í skápum, ísskáp eða frysti. Eina sem skilja má eftir er kaffi, te og krydd. Æskilegt er að skilja eins litið eftir af óhreinum þvotti við brottför og setja í eina vél áður en íbúðin er yfirgefin.