Orlofshúsið Eiðar 1 er fyrir 6 manns

Í húsinu eru 2 svefnherbergi hjónarúm í einu herbergi og rúm (1 ½ ) og koja í hinu.  Sængur, koddar, eitt barnarúm og barnastóll eru á staðnum. Bústaðurinn er fullbúinn  húsgögnum og heimils- og raftækjum, sjónvarpi og nettenging. Borðbúnaður miðast  við sjö manns.Baðherbergi er með sturtu. Á staðnum er útihúsgögn, gasgrill og  heitur pottur sem gengur fyrir rafmagni.

Lín, tuskur og þrif

Félagsmenn þurfa að koma með (lín) þ.e. lak, sængur- og koddaver og handklæði.  Sömuleiðis þarf að hafa meðferðis viskastykki, borðklúta/þrifaklúta, uppþvottalög,  sápu, klósettpappír og plastpoka. Þrífa skal vel eftir dvöl og fylgja leiðbeiningum  sem eru í húsinu. Refsiþrifagjald” (15.000 kr.) getur verið innheimt ef vankantar eru  á þrifum.

Skildu við bústaðinn eins og þú vilt koma að honum

Við brottför skal tæma og þrífa heita pottinn, grill skal þrífa vel, og ef gaskútur tæmist  er viðkomandi beðinn að fara með hann til áfyllingar, taka greiðslukvittun og senda á  skrifstofu félagsins til greiðslu. Í lok dvalar skal allt sorp fjarlægt.

Athugið

Félagsmaður má ekki framselja leigurétt eða leyfa öðrum að dvelja í sínu nafni.  Leigutaki ber ábyrgð á orlofshúsinu og innanstokksmunum meðan á dvöl stendur

Umsjón 

Umsjónarmaður er Ævar Vilberg Ævarsson s: 833-5770, einnig má hafa samband við skrifstofu SLFÍ, sem er opin frá kl.10.00 til 16.00 virka daga og á föstudögum frá kl.10.00 til 12.00, í síma 553-9494.

 Aðrar upplýsingar

 Árabátur fylgir húsi.