Íbúðin við Hallgerðargötu 3 er fyrir 6 manns

Íbúðin er þriggja herbergja. Hjónarúm er í báðum svefnherbergjunum, en þau eru  einnig færanleg í sundur.   Svefnsófi er í stofu sem hægt er að draga í sundur og  breyta í 140 x 200 cm rúm. Sængur og koddar eru á   staðnum, að auki er eitt  barnarúm og  barnastóll. Íbúðinni fylgir allur almennur búnaður sem eðlilegt er að fylgi heimilishaldi. Borðbúnaður er fyrir 10 manns, sjónvarp og nettenging. Baðherbergi er rúmgott en   inni á því er þvottavél og þurrkari. Á svölum er gasgrill.

 Lín, tuskur og þrif

 Félagsmenn þurfa að koma með (lín) þ.e. lak, sængur- og koddaver og handklæði.  Sömuleiðis þarf að hafa   meðferðis viskastykki, borðklúta/þrifaklúta, uppþvottalög,  sápu, klósettpappír og plastpoka. Þrífa skal vel eftir   dvöl og fylgja leiðbeiningum  sem eru í íbúðinni. “Refsiþrifagjald” (15.000 kr.) getur verið innheimt ef   vankantar  eru á þrifum.

Skildu við íbúðina eins og þú vilt koma að henni

Við brottför skal þrífa grillið vel og ef gaskútur tæmist er viðkomandi beðinn að fara  með hann til áfyllingar, taka   nótu og senda á skrifstofu félagsins til greiðslu. Í lok  dvalar skal allt sorp fjarlægt í jarðtunnu fyrir utan húsið næst Sæbraut. Lyklar af íbúð eru notaðir til að opna tunnu.

Athugið

Félagsmaður má ekki framselja leigurétt eða leyfa öðrum að dvelja í sínu nafni.  Leigutaki ber ábyrgð á íbúðinni   og innanstokksmunum meðan á dvöl stendur.

Umsjón

Umsjónarmaður er Gunnar Örn Gunnarsson, gsm 863-9471. Einnig má hafa samband við skrifstofu félagsins   frá kl. 10.00 til 16.00 virka daga, og á föstudögum frá kl.10.00 til 12.00, í síma  553-9494.

Aðrar upplýsingar

  • Hægt er að leigja sængurfatnað á skrifstofu félagsins þ.e. rúmföt, baðhandklæði,  handklæði,viskustykki og borðtusku.
  • Í boði að panta þrif á íbúð.
  • Bílakjallari er undir húsinu, skráning í bílastæðið er í íbúðinni.