Lýsing: 

Um er að ræða íbúð í Quesada/Rojales um 50 km sunnan við Alicante. Íbúðin er með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, stofu og fullbúnu eldhúsi. Þvottavél er í geymslu sem staðsett er úti. Íbúðin snýr í suður og hefur aðgang að sameiginlegri sundlaug. 

Öll þjónusta er í göngufjarlægð t.d matvöruverslanir, veitingahús, apótek og aðrar verslanir. Svokallaður "Laugavegur" er í ca. 15 mín göngufjarlægð. Stutt er í marga góða golfvelli, m.a. La Finca og La Marquesa. Skemmtilegur rennibrautagarður er stutt frá.

Þrif: 

Starfsmaður kemur og þrífur eftir dvöl sjóðfélaga. Þarf því að skilja 100 evrur eftir á eldhúsborði fyrir brottför. Samt sem áður þarf að ganga vel frá íbúðinni áður en farið er.