Orlofshús nr. 65 í Munaðarnesi er fyrir 4 – 6 manns

Í húsinu eru tvö svefnherbergi. Svefnpláss er fyrir tvo í hvoru herbergi annað rúmið breidd 120 cm. Svefnsófi er í stofu sem hægt er að draga í sundur og breyta í rúm. Sængur og  koddar eru á staðnum.   Eitt barnarúm og barnastóll.

 Bústaðurinn er fullbúinn húsgögnum og heimils- og raftækjum, sjónvarp og nettenging.   Borðbúnaður miðast við 10 manns.  

 Á verönd er heitur pottur, útihúsgögn og gasgrill.

 Lín, tuskur og þrif
 Félagsmenn þurfa að koma með (lín) þ.e. lak, sængur- og koddaver og handklæði.   Sömuleiðis þarf að hafa meðferðis viskastykki, borðklúta/þrifaklúta, uppþvottalög, sápu,   klósettpappír og plastpoka. Þrífa skal vel eftir dvöl og fylgja leiðbeiningum sem eru í   húsinu. Refsiþrifagjald(15.000 kr.) getur verið innheimt ef vankantar eru á þrifum.

 Skildu við bústaðinn eins og þú vilt koma að honum
 Við brottför skal tæma og þrífa heita pottinn, grill skal þrífa vel, og ef gaskútur tæmist er   viðkomandi beðinn að fara með hann til áfyllingar, taka nótu og senda á skrifstofu   félagsins til greiðslu. Í lok dvalar skal allt sorp fjarlægt.

 Athugið
 Félagsmaður má ekki framselja leigurétt eða leyfa öðrum að dvelja í sínu nafni.
 Leigutaki ber ábyrgð á orlofshúsinu og innanstokksmunum meðan á dvöl stendur.

 Umsjón
 Umsjónarmaður er Sigvaldi Jónasson gsm 893 1845

 Aðrar upplýsingar
 Ruslagámur er á vinstri hönd þegar ekið er eftir vegi frá bústað.

 

.