Íbúðin við Jaðarleiti 2 er fyrir 6 manns Íbúðin er þriggja herbergja. Hjónarúm er í báðum svefnherbergjunum, en þau eru einnig færanleg í sundur. Svefnsófi er í stofu sem hægt er að draga í sundur og Lín, tuskur og þrif Félagsmenn þurfa að koma með (lín) þ.e. lak, sængur- og koddaver og handklæði. Sömuleiðis þarf að hafa meðferðis viskastykki, borðklúta/þrifaklúta, uppþvottalög, sápu, klósettpappír og plastpoka. Þrífa skal vel eftir dvöl og fylgja leiðbeiningum sem eru í íbúðinni. “Refsiþrifagjald” (15.000 kr.) getur verið innheimt ef vankantar eru á þrifum. Skildu við íbúðina eins og þú vilt koma að henni Við brottför skal þrífa grillið vel og ef gaskútur tæmist er viðkomandi beðinn að fara með hann til áfyllingar, taka greiðslukvittun og senda á skrifstofu félagsins til greiðslu, slfi@slfi.is Í lok dvalar skal allt sorp fjarlægt í jarðtunnu fyrir utan. Lyklar af íbúð eru notaðir til að opna tunnu. Athugið Félagsmaður má ekki framselja leigurétt eða leyfa öðrum að dvelja í sínu nafni. Leigutaki ber ábyrgð á íbúðinni og innanstokksmunum meðan á dvöl stendur. Umsjón Umsjónarmaður er Gunnar Örn Gunnarsson, gsm 863-9471. Einnig má hafa samband við skrifstofu félagsins frá kl. 10.00 til 16.00 virka daga, og á föstudögum frá kl.10.00 til 12.00, í síma 553-9494. Aðrar upplýsingar
|