Orlofshúsið Holtaland 7 er fyrir 6-8 mannsÍ húsinu eru þrjú svefnherbergi, svefnpláss fyrir tvo í hverju herbergi og í einu herbergjanna eru einnig tvær kojur (skipakojur max 70 kg.) Allar dýnur eru 80 x 200 og hægt er að færa rúmin saman. Sængur og koddar eru á staðnum. Eitt barnarúm og barnastóll. Bústaðurinn er fullbúinn húsgögnum og heimils- og raftækjum, sjónvarpi og nettenging. Borðbúnaður miðast við 10 manns. Tvö baðherbergi eru í húsinu og annað með þvottavél og þurrkara. Á verönd er útihúsgögn og gasgrill en heitur pottur er inni í sér rými.Við húsið er upphituð geymsla. Lín, tuskur og þrifFélagsmenn þurfa að koma með (lín) þ.e. lak, sængur- og koddaver og handklæði. Sömuleiðis þarf að hafa meðferðis viskastykki, borðklúta/þrifaklúta, uppþvottalög, Skildu við bústaðinn eins og þú vilt koma að honumVið brottför skal tæma og þrífa heita pottinn, grill skal þrífa vel og ef gaskútur tæmist er viðkomandi beðinn að fara með hann til áfyllingar, taka greiðslukvittun og senda á skrifstofu félagsins til greiðslu. Í lok dvalar skal allt sorp fjarlægt, ruslagámar eru við útkeyrslu af svæðinu. AthugiðFélagsmaður má ekki framselja leigurétt eða leyfa öðrum að dvelja UmsjónSecuritas sér um eftirlit á húsinu og fer í þau eftir hverja dvöl og tekur út. Mögulegt er að kaupa þrif og eru upplýsingar um það í húsinu. Aðrar upplýsingar
|