Orlofshúsið Holtaland 9 er fyrir 6-8 manns

Í húsinu eru þrjú svefnherbergi, svefnpláss fyrir tvo í hverju herbergi og í einu  herbergjanna eru einnig tvær kojur (skipakojur max 70 kg.)  Allar dýnur eru 80 x 200 og  hægt er að færa rúmin saman. Sængur og koddar eru á staðnum. Eitt barnarúm og  barnastóll. Bústaðurinn er fullbúinn húsgögnum, heimilis- og raftækjum, sjónvarpi og  nettenging. Borðbúnaður fyrir 10 manns.Tvö baðherbergi eru í húsinu og annað með  þvottavél og þurrkara. Á verönd er útihúsgögn og gasgrill, en heitur pottur er inni í sér  rými. Við húsið er upphituð geymsla.

Lín, tuskur og þrif

Félagsmenn þurfa að koma með (lín) þ.e. lak, sængur- og koddaver og handklæði.  Sömuleiðis þarf að hafa meðferðis viskastykki, borðklúta/þrifaklúta, uppþvottalög,  sápu, klósettpappír og plastpoka. Þrífa skal vel eftir dvöl og fylgja leiðbeiningum sem   eru í húsinu. Refsiþrifagjald(15.000 kr.) getur verið innheimt ef vankantar eru á   þrifum.

Skildu við bústaðinn eins og þú vilt koma að honum

Við brottför skal tæma og þrífa heita pottinn, grill skal þrífa vel, og ef gaskútur tæmist
er viðkomandi beðinn að fara með hann til áfyllingar, taka greiðslukvittun og senda á  skrifstofu félagsins til greiðslu. Í lok dvalar skal allt sorp fjarlægt, ruslagámar eru við  útkeyrslu af svæðinu.

Athugið

Félagsmaður má ekki framselja leigurétt eða leyfa öðrum að dvelja í sínu nafni.  Leigutaki ber ábyrgð á orlofshúsinu og innanstokksmunum meðan á dvöl stendur.

Umsjón

Securitas sér um eftirlit á húsinu og fer í þau eftir hverja dvöl og tekur út. Mögulegt er  að kaupa þrif og eru upplýsingar um það í húsinu.

Aðrar upplýsingar

Upplýsingar um færð er á https://www.facebook.com/HalondInfo