Í göngufjarlægð við Kringluna og Fjölbraut í Ármúla.

Komið er inn í parketlagt hol með fataskáp.  Eldhúsið er  flíslagt með hvítri innréttingu með beikiköntum.

Rúmgóð björt parketlögð stofa.

Svefnherbergi er mjög rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskáp.

Baðherbergið er með  flísum útloftun og baðkeri.

Sameiginlegt þvottahús er við hlið íbúðarinnar, aðgangur er að hjólageymslu.

Hægt er að leigja á skrifstofu félagsins sængurver og handklæði.

Íbúðin er á jarðhæð. Gengið er inn um aðaldyr og farið niður stiga og er íbúðin á hægri hönd þegar komið er niður u.þ.b. 8 tröppur.